Hjálparskjöl

F-Droid er bæði hugbúnaðarsafn með yfirförnum frjálsum Android-forritum jafnt sem allsherjar “app store” forritabúð, og býður upp á öll þau verkfæri sem þarf til að setja upp og reka slíka forritamiðstöð. F-Droid er frjálst hugbúnaðarverkefni keyrt af miklum fjölda sjálfboðaliða. Það inniheldur fullbúin verkfæri til byggingar og útgáfu hugbúnaðar og stýringar á ferlinu við að umbreyta frumkóða forrita yfir í útgefin forrit.

Vefþjónsverkfæri F-Droid gefa kost á ýmsum skriftum og tólum sem notuð eru til viðhalds og reksturs aðalsafns F-Droid. Þú getur notað þessi sömu verkfæri til að koma á fót þínu eigin viðbótar- eða auka-hugbúnaðarsafni fyrir þína eigin útgáfu, nú eða notað þau til að búa til, prófa og senda lýsigögn inn í aðalhugbúnaðarsafn F-Droid.

Til að komast í gang

Ítarlegri upplýsingar

  • Code of Conduct how to behave when communicating within F-Droid.
  • Hvernig er hægt að hjálpa til Mismunandi leiðir til þess að hver sem er getur gefið af tíma sínum til F-Droid verkefnisins.
  • Þekkt hugbúnaðarsöfn Listi þar sem reynt er að halda utan um öll þekkt F-Droid-samhæfð hugbúnaðarsöfn.
  • Útgáfurásir og undirritunarlyklar Þetta er um hinar ýmsu rásir (channels) sem F-Droid hugbúnaður er gefinn út í gegnum, með upplýsingum um hvernig hægt sé að sannprófa þær með undirritunarlyklum.
  • Öryggislíkan Stuttar skýringar á því hvernig F-Droid kemur hugbúnaði til notenda þannig að fyllsta öryggis sé gætt.
  • Repomaker Notendavænt verkfæri til að halda utan um sérsniðin hugbúnaðarsöfn
  • Þýðingar og staðfærsla Hvernig hinir ýmsu hlutar F-Droid eru staðfærðir.
  • Ábendingar og góð ráð Ýmsar ábendingar og góð ráð sem auðvelda stússið í kringum F-Droid.

Hönnuðir/Forritarar