F-Droid er róbot með dellu fyrir frjálsum og opnum hugbúnaði (free and open source - FOSS) fyrir Android stýrikerfin. Á þessu vefsvæði muntu finna hugbúnaðarsafn með FOSS-forritum, ásamt Android-forriti til að sjá um uppsetningar og uppfærslur. Hér eru líka fréttir, umsagnir um forrit, auk ýmiss annars efnis sem snertir Android og frelsi við notkun hugbúnaðar.
Donations for F-Droid development are handled via our OpenCollective. Donations for the f-droid.org core infrastructure are handled by F-Droid Limited, a UK “private company” registered in England (no. 08420676).
Hafa samband
Þú getur rætt um F-Droid eða fengið aðstoð á spjallsvæðinu og á spjallrás F-Droid notenda.
Þú getur spjallað við aðra um F-Droid eða fengið aðstoð á #fdroid rásinni á freenode eða skrá þig á #fdroid:f-droid.org á Matrix. Umræður á IRC eru skráðar niður á matrix.f-droid.org.
Það eru einni til brúr fyrir Telegram og Jabber/XMPP (á tilraunastigi). Til að taka þátt í gegnum Telegram skaltu smella á þennan tengil. Fyrir Jabber/XMPP skaltu skrá þig á #fdroid#matrix.org@bridge.xmpp.matrix.org.
Þátttakendur við gerð F-Droid nota líka samfélagsmiðlagátt í Fediverse umhverfinu. Þú getur átt í samskiptum við okkur eða fylgst með gangi mála á @fdroidorg@mastodon.technology.
Þú getur sent okkur tölvupóst á team@f-droid.org, en mun líklegra er að svör fáist við fyrirspurnum á spjallsvæðinu eða á #fdroid rásinni. Ef þú hefur áhuga á að hjálpa okkur, geturðu gengið til liðs við okkur.
Ráðgjöf / Greidd aðstoð
Ef þú kemur að rekstri fyrirtækis eða stofnunar sem notar F-Droid eða sem myndi vilja nota F-Droid, þá koma tímabil þar sem gott væri að hafa aðgang að sérfræðingum. Þess vegna höfum við útbúið lista yfir fyrirtæki og forritara sem lagt hafa til F-Droid á einn eða annan hátt og sem gefa sig út fyrir ráðgjöf í þessum efnum:
Notkunarleyfi
- Grunnkóði þessa vefsvæðis og efnið sem framleitt er af F-Droid samfélaginu er tiltækt með GNU Affero General Public notkunarleyfinu, útgáfu 3 eða nýrri (AGPLv3+).
- Efni fréttahlutans og táknmynd F-Droid er einnig tiltækt með Creative Commons Attribution-ShareAlike 3.0 notkunarleyfi (CC-BY-SA-3.0) eða GNU General Public notkunarleyfi, útgáfu 3 eða nýrri (GPLv3+).
- Textinn í lýsingu og myndefni fyrir hvert forrit eru með sérstakt notkunarleyfi fyrir viðkomandi verkefni. Frjáls hugbúnaður ætti einnig að vera með frjálsri lýsingu og myndefni.
- Táknmerki F-Droid var hannað af William Theaker. Uppfærslur á því og viðbótar myndefni er eftir Robert Martinez.
Skilmálar o.þ.h.
F-Droid er verk sjálfboðaliða. Þótt allt sé gert til að tryggja að ekkert sé í hugbúnaðarsafninu sem ekki sé öruggt að setja upp, muntu á endanum nota þetta Á ÞÍNA EIGIN ÁBYRGÐ. Sé það mögulegt, eru forritin í safninu byggð með grunnkóðanum, og er sá grunnkóði yfirfarinn með tilliti til öryggis og meðferðar persónuupplýsinga. Sú yfirferð getur hins vegar ekki verið tæmandi, og er engin ábyrgð tekin á hvort engin óværa sleppi í gegn.
F-Droid virðir einkalíf þitt. Við fylgjumst ekki með þér, eða tækjunum þínum. Við skráum ekki hvað þú setur upp. Þú þarft ekki notandareikning til að setja upp F-Droid forritið, og það sendir engin auka persónugreinanleg gögn í samskiptum við vefþjónninn okkar, önnur en útgáfunúmer forritsins. Við leyfum þér ekki einu sinni að setja upp önnur forrit sem fylgjast með þér, nema þú leyfir fyrst að fylgst sé með þér í ‘Slæmum’ eiginleikum kjörstillinganna. Öll þau persónulegu gögn sem þú gætir ákveðið að láta okkur í té (t.d. tölvupóstfangið þitt þegar þú skráir þig til að geta sent skilaboð á spjallsvæðinu okkar) fara ekkert lengra, og munu ekki verða notuð til neins annars en viðhalds á notandaaðgangi þínum.
Þátttakendur
F-Droid verkefnið var stofnað árið 2010 af Ciaran Gultnieks og er í boði að minnsta kosti eftirfarandi eintaklinga:
- Alberto A. Fuentes
- Alex Oberhauser
- Ali Demirtaş
- Andreas Itzchak Rehberg
- Andrew McMillan
- Andrew Nayenko
- Antonio Tapiador
- Ayron Jungren
- Balázs Meskó
- Ben Arnold
- Boris Kraut
- Chirayu Desai
- Ciaran Gultnieks
- Cédric Cabessa
- Dan Bravender
- Danial Behzadi
- Daniel Kraft
- Daniel Martí
- David Black
- David Sterry
- Dominik Schürmann
- Fabian Rodriguez
- Felix Edelmann
- Florian Schmaus
- Fynn Godau
- Graziano Sorbaioli
- Greg Lyle
- Hans-Christoph Steiner
- Hans-Emil Skogh
- Henrik Tunedal
- Ivo Ugrina
- Jan Berkel
- Jan C Borchardt
- Jochen Sprickerhof
- John Sullivan
- João Fernando C. Júnior
- Kees Hulberts
- Kevin Cernekee
- Kevin Everets
- Laura Arjona Reina
- Leonardo De Luca
- Marcus Hoffmann
- Mariotaku Lee
- Mathijs van Gorcum
- Matt Kraai
- Matthias Weiler
- Michael Haas
- Michael Pöhn
- Michele Azzolari
- Mostafa Ahangarha
- Nat Meysenburg
- Neo Kolokotronis
- Nico Alt
- Nicolas Raoul
- Nikita Kozlov
- Nutchanon Wetchasit
- Osoitz Elkorobarrutia
- Oğuz Ersen
- Paul Sokolovsky
- Peter Serwylo
- Philipp Wollschlegel
- Pierre Rudloff
- Rafael Fontenelle
- Robert Martinez
- Ruslan Boitsov
- Stefan Handschuh
- Steven McDonald
- Sveinn í Felli
- Takumi Shoji
- Tias Guns
- Tobias Kuban
- Torsten Grote
- Trey Yang
- Valerio Bozzolan
- Wellington Terumi Uemura
- William Theaker
Ef þú hefur lagt eitthvað af mörkum til F-Droid og nafnið þitt vantar, eru það væntanlega mistök og þú ættir að bæta sjálfum þér á listann! Hafðu með notandanafnið þitt á Weblate ef þú ert þýðandi. Haltu listanum röðuðum miðað við eftirnöfn.
Upprunalega F-Droid forritið var byggt á Aptoide-appinu sem þróað var af Roberto Jacinto.
